top of page

Spergilkálssalat með eplum

Aug 29
1 min read

Updated: Aug 30

Þetta ferska spergilkálssalat með eplum er bæði stökkt, bragðmikið og einfalt að útbúa. Eplin passa einstaklega vel með spergilkáli, rauðlauk og ristuðum sesamfræjum, en skyr- og sesamdressingin setur punktinn. yfir i-ið.


Salatið hentar vel sem léttur hádegisverður eða sem meðlæti með kjúklingi og öðrum aðalréttum.


2 lítil spergilskálsshöfuð

2 lítil epli

1 rauðlaukur

2 msk ristuð sesamfræ


Dressing

  • 6 msk skyr

  • 4 msk majónes

  • 1–2 tsk dökk sesamolía

  • sjávarsalt eftir smekk


Aðferð

Skerið spergilkálið í litla bita og snöggsjóðið í léttsöltu vatni í um 1- 2 mínútur. Spergilkálið á enn að vera stökkt, svo passið að sjóða það ekki of lengi. Skolið það síðan strax undir köldu vatni og látið renna vel af.


Skerið eplin í litla teninga og saxið rauðlaukinn smátt. Blandið eplum, rauðlauk, spergilkáli og ristuðum sesamfræjum saman. Hrærið hráefnunum í dressinguna vel saman og smakkið til. Blandið dressingunni vel saman við salatið.

Recent Posts

See All

Comments


 © 2025 Allur réttur áskilinn @Elja heilsa ehf. Allt efni og innihald þessa vefs má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar.

  • Instagram
  • TikTok
  • Facebook
  • Pinterest
bottom of page