top of page

Eplamauk

  • 4 hours ago
  • 1 min read

10–15 lífræn epli

Klípa af salti

3 msk sítrónusafi

2 tsk kanill

2 ½ dl vatn


Leiðbeiningar:

  1. Skerið eplin í minni bita (með eða án hýðis en betra með hýði).

  2. Setjið öll hráefnin í pott og látið malla við lágan hita í um 20 mínútur.

  3. Maukið að þeirri áferð sem þið viljið – alveg slétt eða með smá bitum.

  4. Látið kólna.

  5. Setjið í hreina glerkrukku og geymið í kæli.


Eplamauk má nota:

Í smoothies

Ofan á grauta


Eplamauk inniheldur mikið af pektíni, sem hefur frábæra eiginleika fyrir þarmaheilsu.


Pektín:

  • Stuðlar að vexti góðra þarmabaktería

  • Hefur bólgueyðandi áhrif

  • Hjálpar til við að þétta þarmavegginn

  • Stuðlar að myndun slíms (verndar þarmana)

  • Kemur í veg fyrir að slæmar bakteríur festi sig

  • Örvar myndun SCFA (stuttkeðja fitusýra). SCFA (short chain fatty acids) eru fitusýrur sem hafa fjölmörg jákvæð áhrif á heilsu.

  • Styður við heilun þarma

  • Bindur og hjálpar til við að losa eiturefni og þungmálma


Comments


 © 2025 Allur réttur áskilinn @Elja heilsa ehf. Allt efni og innihald þessa vefs má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar.

  • Instagram
  • TikTok
  • Facebook
  • Pinterest
bottom of page