top of page

Einfalt beinaseyði

  • Apr 17
  • 1 min read

1 kg nautabein með merg, fitu og smá kjöti 

2 gulrætur

1 sellerístöng

1 laukur

4 msk eplaedik (lífrænt)

Krydd að eigin vali, ég set gjarnan túrmerik og engiferrót

Salt og pipar eftir smekk


Leiðbeiningar:

  • Brúnið nautabeinin/kjötið í ofni í 20-30 mín við 200°C. Snúið eftir 10-15 mín.

  • Setjið í pott og bætið grænmetinu út í.

  • Bætið við góðri klípu af salti og pipar, hyljið með vatni og bætið  eplaediki út í.

  • Látið suðuna koma upp. Lækkið síðan hitann og látið malla á lágum hita í um 12-24 klukkustundir.

  • Þegar soðið er tilbúið, síað það og bein og grænmeti fjarlægt (hent)


Geymist 5 daga í kæli og 2 mánuði í frysti.


Comments


 © 2025 Allur réttur áskilinn @Elja heilsa ehf. Allt efni og innihald þessa vefs má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar.

  • Instagram
  • TikTok
  • Facebook
  • Pinterest
bottom of page