Gulrótarsalat
- 6 hours ago
- 1 min read
8 gulrætur (í strimlum)
1 msk hörfræolía
1 sítróna (safi)
⅓ bolli eplaedik (með móður)
1 msk Dijon sinnep
¼ bolli extra virgin ólífuolía
½ tsk sjávarsalt
Aðferð:
Blandið öllum hráefnum fyrir sítrónu-sinnepsdressinguna saman í krukku eða skál og hellið yfir gulræturnar.
Ef þið viljið getið þið bætt við hvítlauk og hunangi eftir smekk. Einnig má bæta við rifnum rauðrófum, rauðlauk, geitaosti, og ferskri steinselju eða kóríander.
Þetta salat er frábært – sérstaklega fyrir þarma, meltingu og hormónajafnvægi.
Geymið í loftþéttu íláti í kæli í allt að 5 daga. Ein skammtastærð er um það bil 1 bolli.



Comments