top of page

Gull-latte

  • 2 hours ago
  • 1 min read

1 bolli kókosmjólk eða möndlumjólk

½ tsk túrmerik

¼ tsk kanill

Dass af múskati

¼ tsk engiferduft

Dass af svörtum pipar

½ tsk kókosolía eða ghee


Aðferð:

Allt sett í pott og látið sjóða við vægan hita í 5 mínútur og pískið stöðugt. Drekkið heitt.


Þessi hlýi og nærandi drykkur styður líkamann innan frá. Túrmerik og engifer vinna með líkamanum að því að draga úr bólgum og styðja við náttúrulega hreinsun. Holl fita úr kókosolíu eða ghee styður við upptöku næringarefna og gerir drykkinn bæði mjúkan og nærandi – fullkominn sem kvöldrútína til að róa taugakerfið og styðja við endurnýjun yfir nóttina. Pipar er nauðsynlegt til að virkja túrmerikið.

Comments


 © 2025 Allur réttur áskilinn @Elja heilsa ehf. Allt efni og innihald þessa vefs má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar.

  • Instagram
  • TikTok
  • Facebook
  • Pinterest
bottom of page