Hrískökur með hnetusmjöri og súkkulaði
Stundum er einfalt best. Þessar súkkulaðihjúpuðu hrískökur eru stökkar að utan, mjúkar og karamellukenndar í miðjunni og ótrúlega einfaldar í útbúningi. Döðlurnar gefa náttúrulega sætu og verða að silkimjúkri fyllingu þegar þær eru maukaðar með hnetusmjöri. Þær minna á sörur í hollari kantinum.
5 hrískökur
100 g dökkt súkkulað
Hnetusmjörsfylling:
1 bolli steinhreinsaðar döðlur
5 msk. hreint hnetusmjör
5 msk. vatn
½ tsk. vanilludropar
¼ tsk. Maldon-salt
Maukaðu döðlur, hnetusmjör, vatn, vanillu og Maldon-salt þar til blandan verður mjúk og kremkennd.
Smyrðu ríflegu lagi af fyllingunni yfir hverja hrísköku.
Bræddu súkkulaðið og hjúpaðu hrískökurnar með brædda súkkulaðinu.
Settu þær í kæli þar til súkkulaðið hefur stífnað - geymist í kæli eða frysti.


Comments