Gerjað grænmeti
- Apr 15
- 1 min read
Veldu þitt uppáhaldsgrænmeti t.d. blómkál, gulrætur, lauk, papríku og chili
Kryddaðu eftir smekk, t.d. svört piparkorn og oreganó
Settu nokkur lárviðarlauf (tannin til að halda grænmetinu stökku)
Saltvatn:
Blandaðu 2-3% saltvatnslausn (t.d. 1 lítri vatns = 20–30 g salt).
Leiðbeiningar:
Bættu saltinu út í vatnið og hrærðu þar til það er alveg uppleyst. Settu grænmetið í hreina glerkrukku. Helltu saltvatninu yfir þar til það nær upp að brún. Mikilvægt er að grænmetið sé alveg hulið saltvatninu til að koma í veg fyrir vöxt skaðlegra baktería.
Settu lóð/þyngingu ofan á til að halda grænmetinu niðri í vökvanum og geymdu krukkuna á dimmum stað til að gerjast í 1–3 vikur. Gott er að setja disk undir krukkuna til að grípa vökva sem gæti sullast niður.
Opnaðu krukkuna varlega einu sinni á dag („burpaðu“) til að losa um þrýsting og koma í veg fyrir að krukkan springi. Þegar gerjun er lokið, færðu krukkuna í kæli til að hægja á ferlinu.
Gerjað grænmeti getur geymst í ísskáp í marga mánuði.

Comments