
Dagbókarskrif - lykill að sjálfsvitund og innri ró
Að skrifa dagbók er einföld en öflug leið til að tengjast sjálfum sér, vinna úr hugsunum og rækta innri skýrleika. Þegar við setjum hugsanir okkar á blað, róum við hugann og sköpum rými fyrir ný sjónarhorn og lausnir. Dagbókaskrif snúast ekki um að skrifa fullkomlega – þau snúast um að hlusta á eigin rödd.

Ávinningur dagbókaskrifa
-
Hjálpar til við að losa um streitu og kvíða
-
Skapar meðvitund um hugsanir og hegðunarmynstur
-
Dýpkar tengingu við eigin tilfinningar
-
Eykur þakklæti og jákvæða hugsun
-
Styður við persónulega þróun og markmiðasetningu
Gott markmið er:
Það eru margar leiðir til að skrifa dagbók – prófaðu mismunandi aðferðir og finndu hvað hentar þér best:
1. Þakklætisdagbók: Skrifaðu niður 3 hluti sem þú ert þakklát(ur) fyrir á hverjum degi. Það hjálpar þér að beina athyglinni að því sem er gott í lífinu og eykur vellíðan.
2. Frjáls skrif: Settu tímamæli á 10 mínútur og skrifaðu allt sem kemur upp – án þess að dæma eða leiðrétta. Leyfðu orðunum að flæða og sjáðu hvað birtist.
3. Morgunsíður: Skrifaðu 2–3 síður strax eftir að þú vaknar. Þetta hreinsar hugann, eykur sköpunarkraft og hjálpar þér að byrja daginn með léttari huga.
4. Markmið og sjálfsskoðun: Skrifaðu um heilsumarkmið þín, drauma eða áskoranir.
Dæmi um daglega spurningu:
-
„Hvernig líður mér í dag – líkamlega, andlega og tilfinningalega?“
-
„Hvaða lítil skref get ég tekið í dag til að næra líkama og sál?“
-
„Hvað þakka ég fyrir í dag?“
Spyrðu sjálfa(n) þig:
-
Hvað þarf ég í dag til að líða mér vel?
-
Hvað er mér raunverulega mikilvægt núna?
-
Hvernig get ég stutt betur við sjálfa(n) mig?