top of page

Dagbókarskrif - lykill að sjálfsvitund og innri ró
Að skrifa dagbók er einföld en öflug leið til að tengjast sjálfum sér, vinna úr hugsunum og rækta innri skýrleika. Þegar við setjum hugsanir okkar á blað, róum við hugann og sköpum rými fyrir ný sjónarhorn og lausnir. Dagbókaskrif snúast ekki um að skrifa fullkomlega – þau snúast um að hlusta á eigin rödd.
Mundu: Það er engin rétt eða röng leið til að skrifa dagbók.
Það sem skiptir máli er að mæta sjálfum sér með forvitni, mildi og heiðarleika. Þú ert að rækta tengsl við þig – eitt orð í einu.
bottom of page
